Já þá er síðasta vikan í maí hálfnuð....
Og ég ætla bara að byrja á því að óska henni mömmu minni til hamingju með afmælið í fyrra dag :) Og hann Davíð átti víst afmæli í gær, til hamingju með það :)
Svo eftir akkúrat viku verður hún systir mín tvítug... Allir að verða svo gamlir :O
En annars er ekkert mikið að frétta á þessum hluta jarðar...
Var í löngu fríi yfir helgina, fengum frí á mánudag :)
þannig að á föstudaginn fór ég út og gisti hjá Danielle. Svo á laugardaginn var ég bara heima að horfa á Eurovision með honum pabba.... Ekkert æðislega gaman en hey :P Svo á sunnudaginn fór ég til Mali og Skyler og við horfðum nú bara á nokkrar myndir og síðan kom ég heim. Og á mánudag vorum við með gesti þannig að ég eyddi nú bara seinni hluta dagsins að hjálpa til með matinn og svoleiðis
Svo er ekkert annað að gerast hér. Ætla í klippingu og litun bráðum, hlakka til þess :)
En já, ætla að gera eitthvað productive núna :)
3 comments:
Takk fyrir sms-ið...
Takk fyrir afmælisóskirnar elskan mín og gjafirnar - Yndislegt.
kv,
mamma
takk Tinna...ég er ekki gömul frekar en þú plús 4... tss...
Post a Comment