31 March 2010

31 dagar :)

Já.. Niðurtalningin heldur áfram - aðeins 31dagar. :)
Ég hlakka ekkert smá mikið til :)
Svo á ég afmæli eftir 20 daga :) Og þá verð ég orðin 18 ára. Eld gömul :P Þetta verður reyndar fyrsta skiptið sem ég er alein á afmælinu mínu þannig að ég veit ekki alveg hvað ég ætla að gera. En ég er að búast við að fá einhverja sniðuga súkkulaði köku þegar ég kem heim til Namibíu hóst hóst pabbi :)

Annars er lítið að frétta af mér. Ég er alveg að verða búin með bóka yfirlit sem ég þarf að skila í dag. 8 blaðsíður og ca. 2700 orð. Ég hlakka mjög mikið til að skila þessu inn og það verður alveg risa stórt bros á andlitinu mínu í kvöld :)

Annars er ég hálf búin að eyðileggja höndina mína. :( Okei, smá ýkjur hjá mér. En ég er búin að gera eitthvað við höndina mína. Ég sat fyrir framan tölvuna mína í allan dag í gær að skrifa þetta bóka yfirlit og svo einhverntíman eftir hádegi varð mér allt í einu svo illt í hendinni. Og mér er ennþá ekkert smá illt :(

Og þess vegna get ég ekki skrifað mikið meira.

:)

4 comments:

Gulla said...
This comment has been removed by the author.
Gulla said...

Ég vona að þú sért orðin góð í hendinn elskan mín. Það er laglegt að fá verki eftir of mikla tölvuvinnu :-)

Hlakka til eftir 30 daga :-)

Gulla said...

21 dagur - geggjað :-)

mamma

Gulla said...

21 dagur - geggjað :-)

mamma