18 February 2009

18.o2.o9

Já, það er orðið frekar langt síðan að ég hef bloggað.
Hömm :/

En ég er bara búin að vera alveg á fullu með skólann og hvað annað.
Er byrjuð í 12. bekk :D Ég á rúmlega 7 mánuði eftir af skóla og þá er ég bara búin :D:D
En vá, ekkert smá mikið að gera í skólanum núna. Ég þarf að fara að sækja um í háskóla bráðum og kennararnir eru bara að henda helling á okkur.
Ég þarf að fara í líffræði practicals. :/ og þau eru ekki mjög gaman. Í síðustu viku þurftum við að taka einn fót og einn væng af kakkalakka. *shudder* En ég lét strákana gera það fyrir mig þannig að ég þurfti ekkert að snerta hann :D Og í gær þá vorum við að skoða cells í grasi. Tók mig heillengi að ná lyktini af puttunum mínum *blech*

Og mér gengur alveg ágætlega í skólanum. Er búin að fá mjög góðar einkunnir í öllu sem við höfum gert í tíma. Og ég fékk 76% í ensku prófi, 75% í stærðfræði og 68% í líffræði. Þannig ég er bara ágætlega sátt :)

Svo var ég rosalega góður citizen í dag. Gaf blóð. Það var mitt fyrsta skipti, og ég get alveg sagt að ég ætla ekki aftur á næstunni. Fyrst gátu hjúkkurnar ekki fundið æð, það tók nokkrar mínútur. Svo rann blóðið mitt svo hægt að ég sat í stólnum í örugglega klukkutíma!! Leiddist ekkert smá mikið. Og ég kláraði kókið og kexið sem þau gáfu mér áður en það var búið að klára að taka blóðið úr mér. Svo stóð ég upp og fann ekki fyrir hægri hlutann á líkamanum mínum. Og ég ætlaði að labba niður stigana í skólanum til að sækja töskuna mína og ég gat ekki komið hægri fætinum mínum á tröppunna. Þannig að einn maðurinn sem var að vinna með blóðbankanum tók mig aftur inn í herbergið og lét mig setjast og ég þurfti að sniffa eitthvað vímuefni ;p Ég held það hafi verið eitthvað svipað og alkóhól. Og þetta var bara gert til þess að passa að það mundi ekki líða yfir mig. Og það leið ekki yfir mig :)

4 comments:

Anonymous said...

HA, sniffa vímuefni???? og það í skólanum -jahérna. Skólarnir í Namibíu eru greinilega ekki eins og skólarnir á Íslandi.

En svona í alvöru þá mæli ég nú ekki með því að þú sért að gefa blóð elskan ef þú þarft "vímuefni" til að halda þér á fótum eftir svoleiðis nokkuð.

Það er eins gott að ég var búin að heyra alla söguna áður en ég las þetta blogg hjá þér - ég hefði sennilega fengið vægt kast, humm...

kv,
mamma

Anonymous said...

ha erfiðar æðar ??? má ég þá koma suður í vor og æfa mig að taka blóð, það væri flott að fá eina svona erfiða :-D

Anonymous said...

Þá verður þú Jóhanna að taka vímuefni með þér suður:-)
Ég hélt að þú ættir í erfileikum með blóðþristinginn og svo líður yfir þig af og til svo að mér finnst það ábirgðaleysi af foreldrum þínum að leifa þetta:-)

Doddi

Anonymous said...

Hlustaðu á mömmu þína.Annars getum við Ívar gefið góð ráð við ýmsu,hringdu bara!!!